31. maí 2010 15:05 |
Ársskýrsla Ríkismenntar 2009 |
Ársskýrslan á heimasíðu Ríkismenntar |
Þá hefur árið 2009 verið gert upp af stjórn Ríkismenntar. Staða sjóðsins er sérlega sterk fjárhagslega og er fjöldi afgreiddra verkefna á ári nokkuð stöðugur.
Óhætt er að hvetja stofnanir ríkisins á landsbyggðinni til þess að nýta sér sjóðinn enn betur en hingað til og fara markvisst í það að skipuleggja sí-og endurmenntun starfsmanna sinna.
Rétt er að geta þess að Ríkismennt hefur frá upphafi greitt 100% af kostnaði við námskeið vegna þátttöku þeirra starfsmanna ríkisins sem eru félagsmenn stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands.
Sjá ársskýrslu Ríkismenntar hér. |
| |
19. maí 2010 14:19 |
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins þjónar vinnumarkaðnum öllum |
Breyting á samþykktum Fræðslumiðstöðvar |
Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) þann 6. maí var samþykkt að BSRB, Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytið verði aðilar að félaginu, auk Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.
http://www.frae.is/frettir/nr/327/ |
meira... |
| |
4. maí 2010 13:00 |
Skólaslit Grunnmenntaskólans á Sauðárkróki |
12 nemendur útskrifaðir í Skagafirði |
Í síðasta mánuði voru 12 nemendur útskrifaðir úr Grunnmenntaskólanum frá Farskólanum, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra.
Grunnmenntaskólinn er 300 kest nám sem er niðurgreitt af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og styrkt af Ríkismennt. Helstu námsgreinar eru: sjálfsstyrking, íslenska, enska, stærðfræði, framkoma og ræðumennska, þjónusta og tölvugreinar.
Námið er metið til allt að 24 framhaldsskólaeininga og er ætlað þeim eru 20 ára og eldri. |
meira... |
| |
7. apríl 2010 12:46 |
Útskrift úr Fagnámskeiði á Snæfellsnesi |
Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu |
Í síðasta mánuði voru útskrifaðar 15 konur úr námskeiðinu
,,Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu" í Átthagastofu í Snæfellsbæ.
Konurnar sem sátu námskeiðið starfa m.a. á dvalarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði, dvalarheimlinu Jaðri í Ólafsvík, St. Fransiskuspítalanum í Stykkishólmi og ein kvennanna starfar sem dagmóðir og við liðveislu fatlaðra.
Skipst var á að halda námskeiðið í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og í Átthagastofu Snæfellsbæjar.
Helstu námsþættir á námskeiðinu voru sjálfstyrking, samskipti, þjónusta, skyndihjálp, siðfræði, líkamsbeiting og vinnuaðstaða, næring aldraðra, nudd og jóga.
|
meira... |
| |
18. febrúar 2010 14:32 |
Menntasetrið á Þórshöfn öðrum til fyrirmyndar |
Það er ánægjulegt þegar vel tekst til með tilraunaverkefni eins og Menntasetrið á Þórshöfn.
Þekkingarsetur Þingeyinga og Framhaldsskólinn á Laugum að standa að setrinu á Þórshöfn en samkvæmt frétt á Vísi segir menntamálaráherra að líta meigi til þessarar einingar sem fyrirmynd fyrir fleiri slíkar á landsbyggðinni.
Sjá frétt hér; http://www.visir.is/article/201019064774 |
| |
17. desember 2009 16:08 |
Útskrift nemenda úr Grunnmenntaskólanum í Vestmannaeyjum |
Það var í byrjun febrúar 2009 að ellefu manns settust á skólabekk í kennslustofu Visku í húsnæði Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að auka færni sína í námi eða öllu heldur að læra að læra upp á nýtt eins og einhver þeirra sagði.
Þetta var í fyrsta sinn að Viska bauð upp á þessa námsleið en viðtökurnar voru góðar og nokkuð ljóst að verið var að svara ákveðinni þörf fyrir nám með nýjum leiðum. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Innihald námsins er sjálfsstyrking og samskipti, námstækni, framsögn, íslenska, tölvur, enska, stærðfræði, verkefnavinna, þjónusta, náms- og starfsráðgjöf, færnimappa og mat á námi og skólastarfi.
Ríkismennt óskar nemendum til hamingju með áfangann og vonar að þetta verði byrjunin á einhverju meiru fyrir hópinn. |
| |
10. desember 2009 13:25 |
Fræðslusjóðir kynntir á Húsavík |
Kynning á Ríkismennt, Landsmennt og Sveitamennt |
Þriðjudaginn 8. desember sl. stóð Framsýn Stéttarfélag fyrir kynningu á möguleikum fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á styrkjum til starfsmenntunar. Kristín Njálsdóttir forstöðumaður Ríkismenntar, Sveitamenntar og Landsmenntar gerði fundarmönnum grein fyrir úthlutunarreglum og starfsreglum sjóðanna. Boðið var upp á hangikjöt og meðlæti. Fundurinn tókst afar vel og mættu á fjórða tug manna á fundinn.
|
| |
4. desember 2009 11:57 |
Verkalýðsfélag Snæfellinga opnar nýja heimasíðu |
Verkalýðsfélag Snæfellinga hefur opnað nýja heimasíðu á vefslóðinni www.verks.is
Verkalýðsfélag Snæfellinga varð formlega til 15. október 2008, við sameiningu félaganna þriggja á Snæfellsnesi, þ.e. Verkalýðsfélag Stykkishólms, Stjarnan í Grundarfirði og Verkalýðs-og sjómannafélag Snæfellsbæjar.
Til hamingju með nýja heimasíðu. |
| |
26. nóvember 2009 09:34 |
Úrræði til árangurs |
23. nóvember 2009 12:10 |
Styrkir til stofnana og atvinnurekenda |
20. nóvember 2009 10:38 |
Starfsmenntaverðlaunin 2009 |
19. október 2009 10:46 |
Fagnámskeið fyrir starfsfólk í félags-og heilbrigðisþjónustu |
9. október 2009 11:43 |
Fræðslusjóðirnir kynntir á ferðum um landið |
18. september 2009 12:03 |
Boðið upp á Félagsliðabrú á Akureyri |
31. ágúst 2009 13:29 |
Styrkir vegna starfsmenntunar 2009 |
28. ágúst 2009 11:44 |
Máttur kvenna á Bifröst |
24. ágúst 2009 15:44 |
Finndu eldmóðinn! |
24. ágúst 2009 15:15 |
Menntamálaráðuneyti úthlutar 50 m.kr. til íslenskukennslu útlendinga haustið 2009 |
9. júní 2009 15:50 |
Nemendur á Fagnámskeiði I útskrifast á Suðurlandi |
2. júní 2009 13:22 |
Kennslumyndband um þjónustu |
27. febrúar 2009 10:57 |
Aukning á milli ára í nýtingu einstaklingsstyrkja Ríkismenntar |
13. febrúar 2009 11:50 |
Þjónustuliðar útskrifast hjá Þekkingarneti Austurlands |
12. febrúar 2009 16:05 |
Opinn dagur í Borgarbyggð á vegum atvinnu- og markaðsnefndar |
23. janúar 2009 14:05 |
Rýmri skilyrði vegna greiðslu einstaklingsstyrkja |
eldri fréttir
|